Skipsbækur
Skipsbækur ehf
Vandaðar dagbækur fyrir sjávarútveginn

Rótgróin bókaútgáfa frá 1986

Skipsbækur ehf

Vandaðar dagbækur fyrir skip og báta, byggðar á áratuga reynslu og hannaðar fyrir störfin um borð.

Síðan 1986

Dagbækur fyrir störfin um borð

Skipsbækur hafa í áratugi framleitt og gefið út dagbækur sem þjóna þörfum þeirra sem starfa á sjó.

Vörulínan

Dagbækur fyrir störfin um borð

Hver dagbók hefur sitt hlutverk.

Véladagbók

Véladagbók

17.500 kr

Traust dagbók fyrir íslensk vélarúm. Skyldueign um borð í skipum 24 m eða stærri.

Engine Log Book

Engine Log Book

18.400 kr

Sama hugsun og gæði, sett fram á ensku fyrir erlenda vélstjóra.

Skipsdagbók

Skipsdagbók

13.500 kr

Klassísk skipsdagbók fyrir skipstjóra og stýrimenn.

Leiðarbók

Leiðarbók

12.500 kr

Skráning á siglingum, leiðum og daglegum upplýsingum.

Bátadagbók

Bátadagbók

4.900 kr

Einföld dagbók fyrir minni báta og daglega notkun.

Um Skipsbækur

Rótgróin bókaútgáfa

Fyrirtækið Skipsbækur var stofnað árið 1986 af hjónunum Guðmundi Einarssyni og Ólöfu Borghildi Veturliðadóttur.

Guðmundur starfaði um árabil sem vélstjóri og nýtti reynslu sína til að þróa og framleiða dagbækur sem þjónuðu þörfum þeirra sem starfa um borð í skipum. Samhliða því ritaði hann fjölda kennslubóka í verklegum greinum fyrir framhaldsskóla.

Ólöf starfaði við fyrirtækið frá upphafi og gegndi lykilhlutverki í rekstri þess, þar sem hún sá um daglega umsýslu. Hún var framkvæmdastjóri fyrirtækisins til dauðadags.

Útgáfan þróaðist jafnt og þétt í gegnum árin og úrvalið jókst í takt við þarfir notenda.

Þau störfuðu saman við fyrirtækið alla tíð, allt til ársins 2022 þegar þau féllu bæði frá. Eftir það tóku börn þeirra við rekstrinum.

Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Framkvæmdastjóri

Steingrímur hefur sinnt daglegum rekstri fyrirtækisins frá árinu 2022.

Guðmundur Einarsson

Höfundur

Guðmundur Einarsson

Guðmundur starfaði sem vélstjóri og síðar kennari við Menntaskólann á Ísafirði þar sem hann kenndi vélstjórn og verkgreinar.

Eftir hann liggja fjölmargar kennslubækur sem hafa nýst nemendum og kennurum um land allt.

Sjá bækur hjá Iðnú →

Saga

Úr sögu útgáfunnar

86

1986

Véladagbók kemur út

95

1995

Leiðarbók kemur út

00

2000

Skipsdagbók kemur út

25

2025

Véladagbók á ensku kemur út

Endursöluaðilar

Bækurnar fást hjá völdum söluaðilum

Penninn Eymundsson
Blossi – Grundarfirði
Bókaverzlun Breiðafjarðar – Stykkishólmur
Kjörbúðin – Fáskrúðsfjörður
Olíuverslun Íslands
Smiðjan Fönix – Hellissandur
Vélsmiðja Grindavíkur – Grindavík
Víking Björgunarbúnaður – Hafnarfjörður

Samband

Fyrir pantanir og fyrirspurnir

Hafðu samband vegna pantana og upplýsinga um bækur.

Sími
456 3697
Heimilisfang
Miðtún 39, 400 Ísafjörður